Mt Kenya

Eins og flestir vita þá er Kilimanjaro hæsta fjall álfunnar Afríku og kemst þar með í 7 tinda flokkinn, en þann flokk fylla hæstu fjöll hverrar heimsálfu.
Færri vita að Mt Kenya er annað hæsta fjall áflunnar. Gangan á fjallið er fjölbreytt, farið er í gegnum mismunandi gróðurbelti líkt og gert er á Kilimanjaro. Ofarlega í fjallinu setja sérkennilegir þykkblöðungarnir sterkan svip á gróðurfarið, en efst á fjallinu er gróðurlaus auðn og lítið eftir af þeim jöklum sem áður settu svip sinn á það. 

Farið er yfir fjallið, upp öðrum megin og niður aðra leið hinum megin á fjallinu. Þeir sem áður hafa farið með Slóðum á Kilimanjaro munu þau hitta aftur nokkra af þeim staðarleiðsögumönnum og starfsfólki sem voru með okkur á Kilimanjaro.  
Eins og annað göngufólk þá göngum við á Lenana tind Mt Kenya sem er 4.985 metra hár.  Gangan á Lenana tindinn er ekki tæknilega erfið. Við förum ekki á Bation og Nalion, fáfarna hæstu tinda Mt Kenya, en það er langt og tæknilega erfitt klettaklifur sem krefst klifurútbúnaðar.  
Eftir gönguna er dagur í safari þar sem sjá má mörg af fallegustu og fágætustu dýrum Afríku.  Líklegt er að við sjáum bæði bæði hvíta og svarta nashyrninga ásamt Rothschild gíröfum, fílum ljónum og fleiri dýrum.  

12. til 21. febrúar 2026.
Leiðsögumaður er Leifur Örn Svavarsson.
Verð: 590.000 kr, miðað við 2 í herbergi.
Fjöldi í ferð: 6-16.

Erfiðleikar ferðarinnar:
Gangan ætti að vera á færi allra sem stunda fjallgöngur á íslandi og ganga reglulega. Dagleiðir eru viðráðanlegar og góð hæðaraðlögun gerir 5.000 metra háan toppinn ekki of erfiðan viðfangs. 
Til samanburðar þá er gangan töluvert auðveldari en þegar farið er á Meru fjall og Kilimanjaro, göngu dagarnir styttri og toppadagurinn mun auðveldari.
Þó að hitastig á toppnum fari sjaldan undir frostmark þá er gott að hafa góðan útbúnað, dúnúlpu og góðan svefnpoka. Þátttakendur fá útbúnaðarlista og á fundi fyrir brottför verður farið vel yfir útbúnað og þær aðstæður sem búast má við.

Um ferðina:
Ferðin er 10 dagar í Kenía og af því er gangan yfir fjallið 6 dagar. Gist er á góðu hóteli við komuna til Nairobi sem staðsett er við hlið samnefnds þjóðgarðs.
Valkvætt er að bæta við 4 klst safari ferð eftir hádegi á komudaginn.
Það er stutt ganga daginn sem við ökum að fjallinu, en þá nótt er gist í tveggja manna herbergjum í skála. Næstu 4 nætur þar á eftir er gist í tjaldi. Í göngunni bera burðarmenn töskurnar okkar og við göngum aðeins með létta dagpoka. Það er tjaldað fyrir okkur bæði svefn- og matar tjöldum.
Seinasti göngudagurinn er stuttur og farið er á gott hótel og slakað á við sundlaugarbakkann.  Við förum í dags safari ferð og gistum aðra nótt á sama hóteli. 
Seinni hluta dagsins sem við ökum til baka til Nairobi heimsækjum við gíraffa-friðland, húsið sem Karen Blixten bjó í og höfum loka kvöldverðinn á skemmtilegum Afrískum grill-veitingastað.  

Um Safari daginn:
Það er líklegt að við sjáum bæði hvíta og svarta nashyrninga.  Af norðurstofni hvíta nashyrningsins eru einungis eftir tvö lifandi dýr. Því miður bæði kvendýr og eru þau staðsett í þjóðgarðinum. Suðurstofn hvíta nashyrningsins er frábrugðin norður stofninum að því leyti að dýrin eru töluvert stærri.  Suðurstofn hvíta nashyrninga var nærri því útrýmt en nú eru dýrin stranglega friðuð. Það líklegt að við sjáum talsvert af þeim dýrum ásamt svarta nashyrningum. Í þjóðgarðinum eru einnig fílar, flóðhestar, fjöldi sebrahesta, gasellur, buffalóar og fleiri dýr sem finnast á sléttum Afríku. Þarna eru Rothschild gíraffar, hávaxnasta gíraffa tegundin, en af þeim eru einungis um 1.400 villt dýr. Innan þjóðgarðsins er verndarsvæði fyrir simpansa sem bjargað hefur verið af tollayfirvöldum og dýravernarsamtökum. Simpansarnir eru innan girðingar líkt og í dýragarði og því ekki eins áhrifaríkt að sjá þá eins og þau dýr sem ganga um villt á svæðinu. 
Töluvert er af rándýrum á sléttunni og ekki ólíklegt að við sjáum ljón, en erfiðara er að koma auga á hlébarðana.

Dagskrá ferðar:

Dagur 0 - Flug frá Íslandi.

Dagur 1.  Koma til Kenía.
Lent í Nairobi og farið á gott hótel sem staðsett er við jaðar Nairobi þjóðgarðsins.
Ef lent er snemma þá er hægt að fara í safari ferð um þjóðgarðinn, en það er ekki innifalið í ferðinni.
Gisting á hóteli í 2ja manna herbergjum með baði og morgunmat. Kvöldverður ekki innifalinn.

Dagur 2.  Akstur að fjallinu, gengið að Chogoria Anabas skálanum (2.950 m).
Við erum sótt á hótelið og ekið að fjallinu og búast má við að aksturinn taki um 4 klst. Við borðum hádegismat við fjalsræturnar og hittum þar burðarmennina okkar og annað starfsfólk.  Eftir að hafa skráð okkur inn í þjóðgarðinn ökum við upp moldarslóða sem hlykkjast í gegnum frumskóginn og bambus skóginn í hlíðum fjallsins. Við göngum seinustu 5 km að skálanum sem við gistum í fyrstu nóttina. Skálinn er í efri mörkum regnskógarins og þar á sléttunum getum við átt von á að sjá fíla, buffalóa, mismunandi gasellur og fleiri dýr. Nokkrar tegundir apa eru í skóginum og sjást þeir oft í kringum skálana.  
Gist er í einföldum 2ja manna herbergjum með baði í skála í 2.950 m hæð. Fullt fæði innifalið. Ganga um 5 km með um 250 m hækkun  / 2 klst.

Dagur 3.  Gengið að Ellis vatninu (3.400 m).
Það er ekki ólíklegt að við sjáum fíla eða önnur dýr bregða fyrir þegar við göngum frá skálanum.  Það er gaman að sjá hvernig gróðurinn breytist smám saman úr “fjallaskógi” yfir í runnagróður.  Fyrsti áfangastaður dagsins er foss sem jafnvel á íslenskan mælikvarða er skemmtilegt að skoða. Tjalstæði kvöldsins er við lítið fjallavatn.  Eftir kaffi og aðra hressingu er í boði að fara í stutta aðlögunargöngu á nálægan tind. 
Gist í 2ja manna göngutjöldum í 3.400 m hæð. Fullt fæði innifalið. Ganga um 10 km með 450 m hækkun / 4 klst.

Dagur 4.  Gengið að Michaelson vatninu (3.900 m).
Það er fallegt að ganga fram á bjarg brúnirnar ofan við hömrum girt stöðuvatnið þar sem við tjöldum við vatnsbakkann. Sérkennilegur gróður, þar sem stakir þykkblöðungar verða sífellt meira áberandi og veðraðar klettamyndanir setja svip sinn á daginn.  
Við tjaldstæðið er talsverð af "Tree Hyrax", litlum loðnum spendýrum sem lifa í hlíðum Mt Kenya.  “Tree Hyrax” er líkt múrmeldýri á stærð og útliti en skyldasta núlifandi dýrategundin er fílinn.
Gist í 2ja manna göngutjöldum í 3.900 m hæð. Fullt fæði innifalið. Ganga um 10 km meða 450 m hækkun / 4-5 klst.

Dagur 5. Gengið að Mintos tjaldsvæðinu (4.340 m) og farið í aðlögunar göngu.
Það er stuttur gangur að efsta tjaldstæðinu okkar sem er í 4.340 m hæð. Við tökum nokkra króka á leiðinni. Göngum fram á bjargbrúnina, setjumst niður og dinglum fótunum hátt ofan við fallega stöðuvatnið sem við gistum við nóttina á undan. Við förum hring um tjarnir og klettahóla áður en við komum á næsta tjaldstæði. Eftir hádegismatinn förum við í aðlögunargöngu til þess að vera betur undirbúin undir toppa daginn morguninn eftir. 
Gist í 2ja manna göngutjöldum í 4.300 m hæð. Fullt fæði innifalið. Ganga um 10 km meða 450 m hækkun / 4-5 klst.

Dagur 6.  Toppadagur og gengið niður í LikiNort (3.993 m).
Við vöknum snemma og göngum af stað í myrkri. Gengið er rólega og 3 tíma gangan á toppinn ætti að vera við allra færi. Vegalengdin frá efstu tjaldbúðunum er ekki nema um 3 km og hækkunin um 660 m.
Ef einhverjum líður ekki vel í hæðinni er hægt að láta 4.600 m “ljóna skarðið” nægja en við vonum að til þess komi ekki. Það er fallegt að sjá morgunroðann breytast í dagsbirtu og sólina lýsa upp klettana.
Búast má við björtu veðri og hitastigi 2-4°C á toppnum.
Af toppnum sjáum við yfir sléttur Afríku og í góðu skyggni má sjá tind Kilimanjaro, sem er í rúmlega 300 km fjarlægð. Við hlið Lenana tinds rís brattur klettadrangur með tindunum Bation og Nation.  Gilið sem liggur upp í skarðið, “Gate of Mist”  milli tindana varð frægt eftir að fjallgöngumaðurinn Yvon Chouinard kleif það 1975 og kallaði bratta ísklifur leiðina “Diamond Couloir”. Í dag er lítill eða enginn ís eftir í þessari sögufrægu ísklifurleið, sem staðsett er á miðbaug jarðar og lítið eftir af jöklinum sem áður krýndi toppinn. Við sjáum niður á “Austuríska fjallaskálann sem staðsettur er við jökuljaðarinn, en algengt er að fjallamenn dvelji í hrörlegum skálanum áður en lagt er á tindinn.  
Við förum yfir fjallið, upp austur hlíðarnar og niður vesturhlíðar fjallsins frá “Ljónaskarðinu”. Við tökum okkur góðan tíma til þess að borða og hvíla okkur eftir toppagönguna, en dagurinn er ekki búinn, það er en eftir um 3 klst gangur (7 km með 350 m hækkun og lækkun) í seinasta tjaldstæðið okkar á fjallinu “Liki North” sem er í rétt tæplega 4.000 m hæð.  Gangan er falleg og það er ekki ólíklegt að burðar mennirnir okkar leggi það á sig að ganga niður á láglendið til þess að geta sótt nokkra kalda drykki og bjóði okkur til sölu á vægu verði.  
Gist í 2ja manna göngutjöldum í 4.000 m hæð. Fullt fæði innifalið. Ganga um 13 km með samanlagðri 1.000 m hækkun og 1.350 m lækkun / búast má við að gangan taki um 8-10 klst.

Dagur 7.  Gengið niður að Old Moses (3.300 m) og ekið á hótel.
Gangan í neðstu búðir er að mestu niður í móti. Sérkennilegir þykkblöðungarnir víkja fyrir grasi, runnum og lægri gróðri. Jarðvegur er rakur og farið er yfir nokkra læki.  
Við Old Moses skálann kveðjum við burðarmennina okkar, kokkinn og aðra starfsmann áður en við ökum í gegnum þjóðgarshliðið, sem staðsett er á miðbaug, að þægilegu hótelinu okkar.  Förum í sturtu og slökum á við sundlaugarbakkann það sem eftir lifir dags. 
Gist í 2ja manna herbergjum með baði á hóteli. Hádegis- og kvöldmatur á eigin vegum. Gangan er um 9 km með 700 m lækkun og tekur um 3 klstundir. Akstur á hótelið er um 1-1.5 klst.  

Dagur 8.  Safari dagur.
Um morguninn sækja okkur safari bílar, jeppar þar sem við getum opnað þakið, staðið upp og horft á dýrin. Ol Pejeta friðlandið er 360 ferkílómetra friðland sem staðsett er á Laikipia sléttunni undir hlíðum Mt Kenya.  Miðbaugur jarðar liggur um mitt friðlandið og ökum við í gegnum hann.  Innan friðlandsins er stærsti stofn Austur Afríska nashyrningsins.  Áður var svarti nashyrningurinn útbreiddur um alla austur Afríku, Eþíópíu, Sómalíu, Tansaníu og Kenía.  Dýrin hafa verið ofsótt af veiðiþjófum sem sækjast eftir horninu og nú eru aðeins eftir um 600 dýr í Kenía og um 80 dýr í Tansaníu. Af þeim eru um 100 dýr innan Ol Pejeta friðlandsins. Þar eru einnig seinustu 2 dýrin sem eftir eru af norðurstofni hvíta nashyrningsins en því miður þá eru það bæði kvenndýr. Innan friðlandsins eru um 50 dýr af suðurstofni hvíta nashyrningsins, einu stærsta og tignarlegasta landdýr jarðar, sem getur orðið allt að 4.500 kg. Í byrjun 20 aldar var talið að dýrunum hefði verið útrýmt en síðan fannst hópur 20-30 dýra í Suður Afríku og frá þeim dýrum hefur verið ræktaður upp stofn sem í dag er um 16.000 dýr.  
Öll “5 stóru dýr Afríku” má finna innan friðlandsins en þetta er gömul skilgreining sem veiðimenn notuðu og á við um ljón, hlébarða, nashyrninga, fíla og buffalóa. Af þeim dýrum er erfiðast að koma auga á hlébarðana sem halda sig í skugga á daginn og veiða í ljósaskiptunum. Í friðlandinu eru bæði “masai” og “rothschild” gírafar, sebrahestar, antilópur og fjöldi annara dýra og fugla. Við stoppum í hádegismat á veitingastað í miðju friðlandinu, en annars ökum við um allan daginn, skoðum dýrin og hlustum á fróðan akstursleiðsöumanninn segja okkur frá.  
Gisting á hóteli í 2ja manna herbergjum með baði og morgunmat. Kvöldverður ekki innifalinn.

Dagur 9.  Ekið til Nairobi, skoðunarferð og loka kvöldverður.  
Við ökum aftur til Nairobi um morguninn, en þangað er um 4 klst akstur. Eftir að hafa komið okkur fyrir á hótelinu förum við skoðunarferð um nágrennið. Við heimsækjum gíraffa friðland þar sem hægt er að gefa stórum Rothschild gíröfum af upphækkuðum palli, heimsækjum hús Karenar Blixen og borðum kvöldverð á grill veitingastað.  
Gist á hóteli í 2ja manna herbergjum með baði á hóteli og morgunmat. Kvöldmatur er innifalinn en hádegismatur á eigin vegum.

Dagur 10. Akstur á flugvöll eða framlenging ferðar.
Akstur á flugvöll eða út á lestarstöð fyrir þá sem ætla að framlengja ferðinni og taka nokkra daga í slökun á ströndinni.  


Flug:
Flug er ekki innifalið í verði ferðar.  Við komum með tillögu að viðmiðunar flugleið sem að hópurinn getur sameinast um ef vill og hægt verður að kaupa hjá íslenskum þjónustuaðila. Við leitumst við að hafa viðmiðunarflugið í “einum miða”, þannig að flugfélagið sé ábyrgt ef breytingar verða á flugáætlun og hægt sé að innrita farangur alla leið.  Almennt er ódýrara að kaupa flug með löngum fyrirvara. 

Möguleg framlenging:
Ferðin á Mt Kenya stendur vel undir væntingum ein og sér. Hægt er að framlengja og slaka á nokkrar nætur á góðu hóteli við ströndina í Kenía. Dani ströndin er löng falleg hvít sandströnd við Indlandshaf og oft nefnd ein af fallegri ströndum Afríku. Hægt er að taka lest aðra leiðina, gista í 5 nætur og fljúga síðan til baka til Nairobi eða fljúga heim frá Mumbasa.


Innifalið í verði:
Íslensk fararstjórn með Leifi Erni Svavarssyni.
Undirbúnings fundur fyrir ferð.
Ferðir til og frá flugvelli.
Allar ferðir innan Kenía.
Öll gisting, á hótelum á láglendi, í skála og í tjöldum í fjallgöngunni.
Allur sameiginlegur viðlegubúnaðar, tjöld, eldhústjöld, klósetttjald og fleira.
Burður á farangri í göngunni.
Þjóðgarðsgjöld og önnur leyfi.
Fullt fæði í göngu hlutanum.
Safari ferð í einn dag um Ol Pejeta verndarsvæðið. 
Aðgangur að gíraffa verndarsvæði í Nairobi og safni Karenar Blixen.
Loka kvöldverður á steikarstað í Nairobi.
Lyfjakista með sérhæfðum lyfjum, súrefniskútur og gerfihnattasími.

Ekki innifalið í verði:
Flug til og frá Kenía.
Vegabréfsáritun.
Kvöldmatur þegar dvalið er á hótelum.
Valkvæð safariferð á degi 1.
Ferðatrygging.
Þjórfé til heimamanna.

Bókun ferðar:
Hægt er að bóka ferðina með því að senda póst á info@slod.is og greiða í framhaldi af því 70.000 kr staðfestingargjald.
Staðfestingargjald er að fullu endurgreitt ef fella þarf niður ferðina.
Lokagreiðsla er innheimt 2 mánuðum fyrir ferð.