Perú fjallahjóla- og ævintýraferð, 
með heimsókn til Machu Picchu og í Regnbogafjöllin


Leiðin liggur frá Cusco, höfuðborg Inkanna, um dali og skörð í óviðjafnanlegu fjalllendi Perú. 
Við fáum skutl upp og hjólum niður mismunandi stíga, milli beitilanda, smáþorpa, bóndabæja og akra heimafólks, þar sem fornar rústir eru á hverju strái. 

Í miðri ferðinni tökum við hvíld frá hjólreiðunum og göngum einn dag eftir Inka stígnum upp í Machu Picchu og höfum auk þess annan dag til þess að skoða “týndu borgina”.  Machu Picchu var ekki uppgötvuð af umheiminum fyrr en fornleifafræðingurinn Hiram Bingham fann hana árið 1911. Þá höfðu rústir hennar staðið um aldur, því borgin var byggð löngu fyrir daga hvíta mannsins í nýja heiminum. Machu Picchu er eins og margar aðrar rústir Inkanna á heimsminjaskrá UNESCO.  Eftir heimsóknina til Machu Picchu tökum við gamla járnbrautarlest til baka til hins fallega þorps Ollantaytambo.  
Förum í “via ferrata” kletta göngu upp í “glerklefa gistiheimili”, sem hangir hátt uppi í klettunum ofan við helgan dal Inkanna.  Við rennum okkur þaðan á stálvír niður á veg áður en við hjólum í gegnum Inka rústir niður til Cusco.  
Í lok ferðar heimsækjum við Regnbogafjöllin, sem eru einn myndrænasti staður Perú.

16. til 26. maí 2026.
Leiðsögumaður er Leifur Örn Svavarsson.
Verð ferðar er 580.000 kr.

Miðað er við 2 í herbergi.  Hægt er að vera einn í herbergi en greiða þarf aukalega fyrir það.
Flug til og frá Perú er ekki innifalið í verði ferðar.
Fjöldi í ferð: 6-12 manns.

Um ferðina
Við skiptum við vandaðan þjónustuaðila og allt starfólk og aðbúnaður er til fyrirmyndar. 
Matur er almennt góður í ferðinni og hreinlæti gott.  Við höfum góðan tíma til þess að kynnast borginni Cusco, skoðum Maras saltnámurnar, hinn fallega bæ Ollantaytambo og fleiri staði í hinum heilaga dal Inkanna. 
Hjólaðir eru 5 dagar um helgan dal Inkanna og sveitir Perú.  Flesta dagana förum við tvær hjólaleiðir.  Okkur er ekið upp á fjöll eða fjallaskörð og hjólað þaðan um sveitahéruð niður í dalbotnana.
Stundum þurfum við að teyma hjólin síðasta spölinn, sem er erfitt í yfir 4.000 m hæð yfir sjávarmáli.  
Við göngum eina dagleið á Inkastignum og höfum annan dag til þess að skoða týndu borgina Machu Picchu. 
Í lok ferðar förum við dagsferð frá Cusco í Regnbogafjöllin.
Ferðin er 10 dagar en í boði er fyrir 2 eða fleiri að framlengja ferðina. 

Erfiðleikastig ferðarinnar
Ferðin er erfið fjallahjólaferð þar sem hjólað er niður allt að 2.500 m á dag í tveimur hlutum.  Þó að stærsti hluti stíganna sé ekki tæknilega erfiður og ekki sé gerð krafa um að farið sé hratt þá er nauðsynlegt að þátttakendur hafi reynslu af því að hjóla niður einstígi og göngustíga.  
Lítið er hjólað upp í móti í ferðinni, en nokkrum sinnum þarf að teyma hjólin upp í móti síðasta spölinn áður en niður hjólun hefst og reynir það á í yfir 4.000 m hæð. 
Einn göngudagur, eftir Inka stígnum,  er með 1.100 m hækkun en gengið er rólega og gangan ætti að vera á flestra færi.  

Leiga á hjólum
Hægt er að leigja fulldempandi fjallahjól á 60 US $ á dag.  Hjólin eru 29´ Kona Process með 150 mm afturfjöðrun og 160 mm framdempara.

Til þess að staðfesta ferðina þarf að geiða 70.000 kr staðfestingargjald sem fer í að kaupa leyfi fyrir Inkastíginn.
Takmarkaður fjöldi leyfa er gefinn út fyrir hvern dag og mikil eftirspurn eftir þeim. Því þarf að bóka ferðina með góðum fyrirvara.
Leyfisgjaldið er því miður ekki endurgreitt þó viðkomandi hætti við ferðina og ekki er hægt að nafnabreyta leyfunum á stíginn.
Ferðin verður ekki staðfest fyrr en lámarksþátttöku er náð og staðfestingargjald endurgreitt ef það næst ekki.

Eftirstöðvar koma til greiðslu 2 mánuðum fyrir brottför.
Staðfestingargjald er greitt inn á reikning:
370-26-490325, kt. 490321-0470
og senda kvittun á info@slod.is


Dagskrá ferðar:

Dagur 0. Flogið frá Íslandi.

Dagur 1. Koma til Cusco, höfuðborgar Inkanna.
Staðarleiðsögumaður tekur á móti hópnum og farið er á hótel í miðbæ Cusco.  Cusco býr yfir mikilli sögu og hvarvetna má sjá leifar af menningu og byggingum Inkanna ásamt byggingum frá spænska nýlendutímanum. Borgin er í 3.400 metra hæð og viðbúið að þátttakendur finni fyrir hæðinni. 
Gist á Hóteli í Cusco, kvöldverður ekki innifalinn.

Dagur 2. Heilagur dalur Inkanna.
Eftir morgunverð er ekið af stað eftir Urubamba dalnum, hinum helga dal Inkanna.
Þegar vegurinn hlykkjast upp úr dalnum fáum við fyrstu sýn á háfjöllin, Vilcabamba tindana, Salkantay og Huayanay.  Við hjólum tvær mismunandi hjólaleiðir sem hlykkjast 10-15 km niður í Sacred Valley, helgan dal Inkanna.  Jeppi ekur okkur upp í 4.200 m hæð og við hjólum fyrst Lamay stígana og svo úr Lares skarðinu niður í dalbotninn.  Stígarnir byrja í opnu víðerninu yfir skógarlínu, þar sem farið er um beitarlönd, svo er stígum fylgt inn í skóginn á milli bóndabýla, akra og smáþorpa niður í dalbotninn. 
Gist á Hóteli í helga dalnum.  Kvöldverður ekki innifalinn.

Dagur 3. Helgur dalur Inkanna, Maras saltnámurnar og rústir Ollantaytambo.
Við höldum leiðarvalinu opnu og staðarleiðsögumaðurinn mun í samvinnu við okkur velja fallega stíga sem henta getu hópsins.  Við stefnum aftur á að fara tvær leiðir með hádegismat á milli ferða. 
Milli hjólaleiða stoppum við í Moray, en þar má sjá leifar einna elstu landbúnaðartilrauna sem þekktar eru. Risastórar spírallaga holur sem grafnar voru niður í jörðina, stall eftir stall. Allt að 15° hitamunur var á efsta og neðsta stalli og talið er að Inkarnir hafi gert tilraunir með hvaða tegundir plantna þrífast við hvaða aðstæður.  
Seinni hjólaleið dagsins er eftir hádegisverð. Þá stefnum við á að hjóla frá miðalda þorpinu Maras, gegnum umfangsmiklar saltnámurnar sem hafa verið starfræktar allt frá tímum Inkanna.
Í lok dags er stuttur akstur að þorpinu Ollantaytambo, þar sem gist er. Ollantaytambo er einstaklega fallegur bær, grunnmynd hans og hleðslur eru frá tímum Inkanna og í hlíðunum fyrir ofan bæinn hvílir virki þar sem Inkarnir unnu eina af fáum orustum gegn spænska innráðsarliðinu.
Gist á hóteli í Ollantaytambo, kvöldverður ekki innifalinn.

Dagur 4. Stígarnir ofan við Ollantaytambo.
Það eru tilkomumiklar Inkarústir fyrir ofan Ollantaytambo og deginum verður varið við að þræða þá stíga sem Inkarnir lögðu um fjalllendið.
Gist á hóteli í Ollantaytambo, kvöldverður ekki innifalinn.

Dagur 5. Inkastígurinn til Machu Picchu.
Við byrjum á að taka útsýnislest inn dalbotnin. Þaðan göngum við fram hjá ökrum og strjálli byggð smábænda og komumst inn á hinn eina sanna Inkastíg. 
Leiðin liggur að Inka rústunum Winay Huayna, sem kennt er við eilífa æsku. Áfram er haldið og eftir uþb klukkutíma lækkun og 30 mín hækkun komum við að Inti Punku - sólar hliðinu, þaðan sem við sjáum Machu Picchu, sjón sem á trúlega eftir að lifa með okkur. Við höldum gegnum sólarhliðið og lækkum okkur niður fyrir Machu Picchu og tökum rútu í bæinn Machu Picchu (2030m) þar sem við gistum á hóteli.
Í bænum sem hét áður Aguas Calientes (heitt vatn) er að finna hverasvæði, eins er þar fjöldi veitinga- og ölhúsa.
Gist á hóteli í 2ja manna herbergjum.  Kvöldmatur ekki innifalinn.  
Göngutími um 7-8 klst, vegalengd um 12 km - hækkun 1.100 m hækkun.

Dagur 6. Machu Picchu.
Við tökum daginn snemma og fáum rútu upp til Machu Picchu til hafa nægan tíma til að skoða svæðið. Með í för er staðarleiðsögumaður sem leiðir okkur um hina tilkomumiklu “gleymdu” borg Inkanna.
Fyrir þá sem hafa áhuga á því er hægt að bæta við upplifun dagsins að klífa upp Huayna Picchu-tindinn, sem þýðir „Ungi tindurinn“ á Quechua-málinu. (Machu Picchu þýðir „gamli tindurinn.“) Inkarnir lögðu stíg upp hlíðar Huayna Picchu, og byggðu musteri og verönd á tindi hans, sem er í um 2720m hæð. Þaðan er flott útsýni og annað sjónarhorn yfir Machu Picchu svæðið.
Eftir heimsóknina í Machu Picchu er hádegisverður á veitingastað áður en lestin er tekin til Ollantaytambo í hinum helga dal.
Gist á hóteli í 2ja manna herbergjum Ollantaytambo. Kvöldverður ekki innifalinn. 

Dagur 7. Hjólað ofan við Ollantaytambo, “via ferratta” og gist utan í klettavegg.
Við náum einni langri hjólaleið fyrir hádegismat.
Eftir hádegið förum með fjallaleiðsögumönnum upp “via ferrata” klettagöngu upp í glerhýsi sem hanga hátt í klettavegnum ofan við helgan dal Inkana, en þar er gist um nóttina.  
Gisting í hangandi glerhýsum, kvöldmatur innifalinn.

Dagur 8. Stígarnir ofan við Cusco.
Við rennum okkur á “zipline” og sígum niður á jafnsléttu áður en við hjólum síðustu hjólaleiðina okkar gegnum víðfermar Inka rústir niður til Cusco.
Gist á hóteli í 2ja manna herbergjum í Cusco, hádegis matur og “loka kvöldverður” hópsins innifalinn.

Dagur 9. Dagsferð í Palccoyo Regnbogafjöllin.
Við tökum daginn snemma og leggjum af stað að Regnbogafjöllunum.  Það eru fleiri en eitt svæði sem gangast undir nafninu “Regnbogafjöllin”, en við heimsækjum Poccoyo fjöllin. 
Þetta er langur dagur og aksturinn hvora leið tekur rúmar 3 klukkustundir.  

Þó að gangan upp á útsýnistaðinn sé ekki löng, tekur hún um klukkustund þar sem við erum í nærri 5.000 m hæð.  Á leiðinni er stoppað nokkrum sinnum, eftir því sem útsýnið yfir Regnbogafjöllin breytist.
Efst höfum við útsýni yfir litskrúðug Regnbogafjöllin og Vilcanota fjallgarðinn með Ausangate jökulinum sem var einn af þremur helgustu fjöllum Inkanna.  Þeim sem líður vel í hæðinni geta haldið áfram göngunni og gengið í gegnum sérstakar klettamyndanir og á fleiri góða útsýnisstaði.   
Gist á hóteli í 2ja manna herbergjum, nestispakki í hádeginu er innifalinn, en kvöldverður ekki. 
Göngutími um 3.5 klst, aksturstími 6 klst og 15 mín. Vegalengd um 3.5 km - hækkun / lækkun 214 m.

Dagur 10. Frjáls dagur í Cusco.
Frjáls dagur í lifandi og skemmtilegri borginni.

Dagur 11. Heimferð eða framlenging.

Hér líkur hinni eiginlegu dagskrá með akstri á flugvöll í Cusco.  Hægt er að framlengja ferðina og getur það verið: 

  1. Hjólaferð með staðarleiðsögumanni um Ausangate svæðið í Perú með heitum laugum og spennandi fjallahjólaleiðum.  

  2. Ferð niður í Amazon regnskóginn.  

Áhugasamir um framlengingu ferðarinnar geta verið í sambandi við Leif eða Sigrúnu hjá Slóðum. 

Innifalið í verði:
Undirbúningsfundur með leiðsögumanni fyrir brottför og Íslensk leiðsögn.
Viðmiðunar flugleið sem þátttakendur geta nýtt sér.
Akstur til og frá flugvelli í Cusco, fyrir þá sem taka viðmiðunar flugleið.
Góð hótel (3 stjörnu eða meira) með morgunverði í 10 nætur.
5 fjallahjóla dagar með skutli, staðar leiðsögumanni, hádegismat og drykkjarvatni.
Leyfisgjöld og aðgangur að Inka stígnum og  Machu Picchu í 2 daga.
Allur akstur innan Perú.
Via ferratta kelttaganga með öryggisútbúnaði og leiðsögn.
Gisting í “glerkúlu” í klettavegg ofan við heilagan dal Inkanna.
Zipp line niður í dalbotninn.
Enskumælandi staðarleiðsögumenn.
Dagsferð í Regnbogafjöllin.
Fyrstuhjálpar- og hjólaviðgerðar búnaður.

Ekki innifalið í verði:
Flug til og frá Cusco.
Leiga á fjallahjólum.
Kvöldverður, annar en loka kvöldverður.
Þjórfé til heimamanna.
Ferðatrygging.
Persónuleg eyðsla eins og drykkir.