Ganga í grunnbúðir Aconcagua (6.962m) - hæsta fjalls Suður Ameríku
Í janúar 2027 verður Leifur Örn Svavarsson með göngu í grunnbúðir Aconcagua, hæsta fjall Suður Ameríku.
Fjallið er staðsett í Argentínu rétt við landamæri Chile. Flogið er til Mendoza, fallegs bæjar í helsta vínræktarhéraði Argentínu. Gangan að Aconcagua er falleg, landslag litríkt og stórbrotið.
Við gistum 3 nætur í grunnbúðunum sem yða af lífi og eru fjölmennustu fjallamennskubúðir heims. Gengið inn undir 3.000 m háa suðurhlíð fjallsins, sem er ein hæsta fjallshlíð heims.
Genið er á 5.000 metra fjallstind ofan við grunnbúðirnar með flottu útsýni yfir Aconcagua og Andesfjöllin.
Það er gaman að koma til suðrænu borgarinnar Mendoza. Þar förum við í vínsmökkunaferð í hjarta Malbek vínhéraðs Argentínu, borðum nautasteikur og Argentískan grillmat.
Ef það passar inn í flugleiðina þá er valkvæt að gista tvær nætur í Buenos Aires á bakaleiðinni og fara skoðunarferð um borgina.
Dagsetning: 5. til .. janúar 2027.
Leiðsögumaður: Leifur Örn Svavarsson.
Verð:
Fjöldi: 6 til 16 manns, miðað við 2 í herbergi.
Erfiðleikastig: Gengið er með létta dagpoka og farangur fluttur á múldýrum. Nokkrir göngu daganna eru langir og getur heitt veðurfar og hæð yfir sjávarmál gert þá daga en erfiðari.
Dagskrá ferðar:
Til að bóka ferðina þarf að greiða 70.000 kr óafturkræft staðfestingargjald.
Eftirstöðvar koma til greiðslu 2 mánuðum fyrir brottför.
Best er að greiða inn á reikning 370-26-490325, kt. 490321-0470
og senda kvittun á sigrun@slod.is
Staðfestingargjald er að fullu endurgreitt ef fella þarf niður ferðina.
Innifalið í verði ferðar er:
Leiðsögn Leifs Arnar Svavarssonar.
Fundur fyrir brottför.
Viðmiðunar flugleið fyrir hópinn.
Ferðir til og frá flugvelli í Argentínu.
Gisting á hóteli með morgunverð í Mendoza, ein nótt fyrir ferð og ein nótt eftir fjallgönguna.
Akstur fyrir hópinn til Penitentes og frá Penitentes að upphafsstað göngunnar.
Gisting á hóteli í Penitentes með morgunverð í 1 nótt.
Sérhæfð lyfjakista, gervihnattasími og talstöðvar.
Ekki innifalið í verði ferðar er:
Persónulegur útbúnaður.
Flug til og frá Mendoza Argentínu.
Leyfisgjöld fyrir fjallgönguna (árið 2024 var gjaldið 800$ á mann).
Matur í Mendoza og í Penitentes annar en morgunmatur.
Hægt er að fá eins manns herbergi í Mendoza og Penitentes gegn viðbótargjaldi
Hægt er að fá eins manns tjald í grunnbúðum og í göngunni að fjallinu gegn viðbótargjaldi
Allur kostnaður sem felst í að hætta í leiðangrinum á meðan á honum stendur.
Burður á persónulegum farangri en 2 geta sameinast um burðarmann og þá eru borin 10 kg frá hvorum sem léttir gönguna töluvert.
Persónuleg eyðsla eins og internet aðgangur, sturtur í grunnbúðum og í göngunni að fjallinu, drykkir og fleira.
Ferðatrygging, en það er skylda að hafa tryggingu á fjallinu.
Viðbótar nætur í Mendoza ef dvalið er meira en 2 nætur í bænum. Þar sem við höfum rúman tíma á fjallinu þá er viðbúið að 1-2 nætur í Mendoza bætist við!
Þjórfé til heimamanna.
Önnur þjónusta en kemur fram í ferðalýsingu.