Úganda, Mt. Stanley, górillur, safarí og simpansar.
Ferðin er tvískipt, fyrri hlutinn er ganga á Margarita tindinn, einn af tindum Mt. Stanley.
Seinni hlutinn er 4ra daga framlenging þar sem við skoðum fjölbreytt dýralífið í Queen Elizabeth þjóðgarðinum og göngum meðal fjallagórilla í Bwindi Impenetrable þjóðgarðinum.
Margarita tindurinn á Mt. Stanley er þriðja hæsta fjall, Afríku 5.109m hár. Hann er hluti af Rwenzori fjallgarðinum, sem er á heimsminjaskrá UNESCO sökum líffræðilegrar fjölbreytni og einstaks gróðurfars. Hvassir kletta tindarnir hafa gefið fjöllunum viðurnefnið “Mountains of the Moon”.
Átta daga gangan á tindinn er falleg en krefjandi og gangan á toppinn er brött. Þó að við séum nánast á miðbaug jarðar þá er jökull á toppnum. Á toppadaginn göngum við á jöklabroddum og í línu um brattar ísilagðar hlíðar. Á niðurleiðinni er okkur sigið niður nokkra bröttustu kaflana. Í göngunni gistum við í nýlegum einkaskálum, einfaldri gistingu en snyrtilegri.
Á leiðinni að fjallinu er Kibale þjóðgarðurinn heimsóttur, gengið með skógarverði til þess að geta heimsótt simpansa í sínu náttúrulega umhverfi.
Það að heimsækja górillur í sínu náttúrulega umhverfi er að sögn þeirra sem það hafa upplifað mögnuð reynsla. Heimsókninni er vandlega stýrt af þjóðgarðsvörðum frá Uganda Wildlife Authority.
Gönguferðin um þéttann og þokukendann Bwindi skóginn getur tekið allt frá 1 til 7 klukkustundir eftir því hvar górillu fjölskyldan er staðsett. Gengið er um brattar brekkur, þéttann gróður, yfir ár og dali, sem gerir gönguna bæði ævintýralega og krefjandi. Þegar górillu fjölskylda er fundin hefur hópurinn að hámarki eina klukkustund til að fylgjast með henni í sínu náttúrulega umhverfi. Þess er vandlega gætt að truflun sé sem minnst af heimsókninni.
Dagsetning: 6. til 17. febrúar 2027.
Ef farið er í framlengingu og fjallagórillur heimsóttar er ferðin til 21. febrúar.
Leiðsögumaður er Leifur Örn Svavarsson.
Verð ferðar er 645.000 kr fyrir göngu hlutann, við það bætist 380.000 kr ef farið er í framlenginguna.
Fjöldi í fyrri hluta ferðar er 6 -12, en í seinni hlutanum 4 - 12 .
Erfiðleikar ferðarinnar:
Þetta er einstakt ferðalag og gangan á Margarita tindinn mjög falleg. Toppa dagurinn er krefjandi og nauðsynlegt að hafa einhverja reynslu af göngum um fjalllendi að vetri til og hafa gengið á jöklabroddum og í línu. Í seinni hluta ferðarinnar er meiri áhersla á dýraskoðun, en dagurinn sem fjallagórillurnar eru heimsóttar getur verið krefjandi.
Um ferðina:
Grunn ferðalagið í Úganda er 13 dagar. Eftir það er valkvæð 4 daga framlenging þar sem við skoðum fjölbreytt dýralífið í Queen Elizabeth þjóðgarðinum og göngum meðal fjallagórilla í
Bwindi Impenetrable þjóðgarðinum.
Með safari ferðinni og górillu skoðuninni er ferðin 16 dagar en valkvætt er að stytta ferðina um dag og fljúga innanlandsflug til baka til Entebbe í staðin fyrir að keyra.
Dagskrá ferðar:
Hér er gróf dagskrá ferðar, hafið samband við info@slodir.is til að fá nánari lýsingu á ferðinni.
Dagur 0 - Flug frá Íslandi.
Dagur 1. - Koma til Entebbe, alþjóðaflugvallarins í Úganda.
Gisting á hóteli í 2ja manna herbergjum með morgunverð. Kvöldverður ekki innifalinn.
Dagur 2. - Ekið frá Entebbe í Kibale þjóðgarðinn.
Gisting á hóteli í 2ja manna herbergjum. Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.
Dagur 3. - Heimsókn í Kibale þjóðgarðinn og gengið meðal simpansa.
Gisting á hóteli í 2ja manna herbergjum. Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.
Dagur 4. - Fyrsti göngudagur, gengið í Sine búðirnar í 2.596m hæð.
Vegalengd um 10 km, hækkun 1.146 m, áætlaður göngutími er 6 til 7 klukkustundir.
Gisting í Sine búðunum, í einföldum einkareknum skálum. Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.
Dagur 5. - Annar göngudagur, gengið að Mutinda búðunum í 3.588m hæð.
Vegalengd um 6 km, hækkun 1.000m, áætlaður göngutími er 6 til 7 klukkustundir.
Gisting í Mutinda búðunum, í einföldum einkareknum skálum. Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.
Dagur 6. - Þriðji göngudagur, gengið í Bugata búðirnar í 4.100m hæð.
Vegalengd um 9 km, hækkun 474m, áætlaður göngutími er 5 til 6 klukkustundir.
Gisting í Bugata búðunum, í einföldum einkareknum skálum. Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.
Dagur 7. - Fjórði göngudagur, gengið í gegnum Bamwanjara skarðið (4.559m) í Hunwick búðirnar sem eru í 3.974m hæð.
Vegalengd um 9 km, hækkun 460m, áætlaður göngutími er 8 til 9 klukkustundir.
Gist í Hunwick's búðunum, einföldum einkareknum skálum. Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.
Dagur 8. - Fimmti göngudagur, gengið í efstu búðir, Margherita búðirnar í 4.485m hæð.
Vegalengd um 5 km, hækkun 510m, áætlaður göngutími er 5 til 6 klukkustundir.
Gisting í Margherita búðunum, einföldum einkareknum skálum. Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.
Dagur 9. - Sjötti göngudagur, toppadagur, gengið á 5.109 metra háan Margarita tindinn.
Áætlaður göngutími: 5 til 6 klukkustundir á toppinn, 3 til 5 klst til baka til Margherita og 3 til 4 klst niður í Hunwick búðirnar. Alls 11 til 15 klukkustunda dagur.
Gisting í Hunwick búðunum, sama skála og við sváfum í á degi 7. Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.
Dagur 10. - Sjöundi göngudagur, gengið niður í Kiharo búðirnar, í 3430m hæð.
Vegalengd um 16 km, hækkun 530m, lækkun 1075m, áætlaður göngutími er 10 til 12 klukkustundir.
Gisting í Kiharo búðunum. Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.
Dagur 11. - Áttundi göngudagur, gengið niður í grunnbúðirnar í 1.450m hæð.
Vegalengd um 16 km, lækkun 1.980 m að hliði garðsins og 2,2 km að grunnbúðunum, áætlaður göngutími er 6 til 8 klukkustundir.
Gisting á hóteli í 2ja manna herbergjum.Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.
Dagur 12. - Haldið til baka til Entebbe og áfram heim eða farið í safari og göngu með górillum.
Ferðin er tvískipt og hægt er að taka aðeins göngu hluta ferðarinnar, eða bætt við heimsókn til fjallagórilla í Bwindi Impenetrable þjóðgarðinum.
Dagur 12. - Safari í Queen Elizabeth þjóðgarðinum.
Gisting á hóteli í 2ja manna herbergjum.Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.
Dagur 13. - Bátsferð um Kazinga-sundið og akstur í Bwindi Impenetrable þjóðgarðinn.
Gisting á hóteli í 2ja manna herbergjum.Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.
Dagur 14. - Heimsókn til górilla í Bwindi Impenetrable þjóðgarðinum.
Gisting á hóteli í 2ja manna herbergjum.Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.
Dagur 15. - Ekið á Kisoro flugvöll og valkvætt flug til Entebbe eða dags akstur til Entebbe.
Gisting á hóteli í 2ja manna herbergjum, morgunverður innifalinn.
Dagur 16. - 21. Akstur á flugvöll og flogið heim.
Flug:
Flug er ekki innifalið í verði ferðar. Við komum með tillögu að viðmiðunar flugleið sem þeir sem það vilja geta keypt.
Innifalið í verði:
Íslensk fararstjórn með Leifi Erni Svavarssyni.
Undirbúnings fundur fyrir ferð.
Viðmiðunar flugleið sem þátttakendur geta nýtt sér.
Ferðir til og frá flugvelli.
Enskumælandi staðar leiðsögumenn og þjóðgarðsverðir.
Allar ferðir innan Úganda.
Öll gisting í Úganda, á hótelum og í skálum.
Allur matur að undanskyldum kvöldverð fyrsta og seinasta kvöldið.
Þjóðgarðsgjöld og önnur leyfi.
Burður á farangri meðan á göngu stendur.
Fjallgöngubúnaður annar en mannbroddar.
Gúmmístígvél til að nota á mýrlendasta hluta göngunar.
Lyfjakista með sérhæfðum lyfjum og gervihnattasími er með í ferðinni.
Innifalið í safari ferð og göngu með górillunum.
Reyndur aksturs leiðsögumaður og leiðsögn þjóðgarðsvarðar.
Öll leyfisgjöld í Queen Elizabeth þjóðgarðinum og Bwindi Impenetrable þjóðgarðinum.
Gisting, ferðir og allur matur í ferðinni.
Ekki innifalið í verði:
Flug til og frá Úganda.
Valkvætt innanlandsflug til Entebbe í lok ferðar, en það styttir ferðina um dag.
Hádegis- og kvöldverðir á hóteli við komu og við brottför.
Þjórfé til heimamanna.
Persónuleg eyðsla eins og drykkir.
Ferðatrygging.
Bókun ferðar:
Hægt er að bóka ferðina með því að senda póst á info@slod.is og greiða í framhaldi af því 70.000 kr staðfestingargjald í hvorn hluta ferðarinnar.
Staðfestingargjald er að fullu endurgreitt ef fella þarf niður ferðina.
Lokagreiðsla er innheimt 2 mánuðum fyrir ferð.